Vinnurammi og starfslýsing táknmálstúlka
Kröfur til starfs:
- BA-próf í táknmálsfræði og táknmálstúlkun
- Allir táknmálstúlkar undirgangast þagnarskyldu. Innan faghópsins ríkir fullur trúnaður
- Túlkun fyrir heyrnarlausa og daufblinda í öllum hugsanlegum aðstæðum
- Túlkur getur neitað verkefni telji hann sig ekki geta sinnt því
- 100% ábyrgð á öllum verkefnum sem hann tekur að sér
- Eflir og viðheldur fagþekkingu sinni með reglubundinni endur- og símenntun
- Fjölbreyttar vinnuaðstæður krefjast mikils sveigjanleika
- Vikuleg vinnuskylda túlka í fullu starfi er 40 klukkustundir miðað við 100% starf
- Túlkaðir tímar eru 20 klst. á viku og 20 tímar eru undirbúningur, eftirvinnsla, ferðir og túlkafundir. Hámark túlkaðir tímar á dag eru 6 klst. Þó aldrei meira en 30 túlkaðir tímar á viku.
- Verkefni sem varir í meira en eina klukkustund skulu tveir túlkar sinna
- Verkefni sem er skemur en ein klukkustund getur þó krafist tveggja túlka, s.s. mannmargir fundir, túlkun við opinberar aðstæður, túlkun af erlendum málum o.fl.
- Túlkur sem tekur að sér túlkun fyrir daufblinda skal fá það metið í launum
- Verkefni sem varir meira en eina klukkustund skulu alltaf tveir túlkar sinna
- Verkefni sem er skemur en ein klukkustund getur þó krafist tveggja túlka, s.s. fyrirlestur, mannmargir fundir o.fl.
- Mikilvægt er að nýjir túlkar fái handleiðslu í starfi. Reyndir túlkar eiga jafnframt kost á henni ef þeir óska
Túlkar skuli hafa sér aðstöðu þar sem þeir hafa aðgang að:
- Tölvum sem þeir hafa fullan aðgang að
- Læstur skápur fyrir trúnaðarskjöl
- Skrifborð
- Góða vinnustóla (stóla á hjólum)
- Lesaðstöðu
- Nauðsynlegt er að túlkur fái sem mestar upplýsingar um verkefni og tiltæk gögn með fyrirvara
Helstu verkefni
- Túlkun á öllum skólastigum
- Túlkun í heilbrigðiskerfinu
- Túlkun í dómskerfinu
- Túlkun við trúarlegar athafnir
- Túlkun í daglegu lífi fólks (félagsleg túlkun)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli